


sun., 31. ágú.
|Tjarnarbíó
FÓA OG FÓA FEYKIRÓFA
ÞEGAR FÓA FEYKIRÓFA REKUR FÓU ÚR HLÝJA, FALLEGA, HELLINUM SÍNUM OG SEST ÞAR SJÁLF AÐ, VEIT FÓA EKKI HVAÐ SKAL TIL BRAGÐS TAKA!
Tími og staðsetning
31. ágú. 2025, 13:00 – 14:00
Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík, Iceland
Um viðburðinn
Á síðasta leikári sýndu Umskiptingar, söguna af Gýpu, fyrsta ævintýrið í seríunni Töfrabækurnar.
Nú er komið að sögunni um Fóu og Fóu Feykirófu en hún fjallar um það þegar Fóa Feykirófa rekur Fóu úr hlýja, fallega hellinum sínum og sest þar sjálf að. Fóa veit ekki hvað skal til bragðs taka en vinir hennar, lambið, kindin, sauðurinn og hrúturinn bjóða öll fram hjálp sína að ná honum til baka. Það gengur þó ekki áfallalaust fyrir sig.
Töfrabækurnar eru brúðuleikhússería fyrir yngstu börnin þar sem unnið er með þjóðsögur. Þegar bókin opnast breytist hún í leikmynd fyrir söguna og þær persónur sem koma fram verða tvívíðar brúður sem stjórnað verður ofan frá.
Tveir leikarar stjórna brúðum og sjá um allan leik og lifandi tónlistarflutning.
Þess má geta að sýningarnar eru ávallt afslappaðar þar sem kveikt er í salnum, ekki er notast við hljóðkerfi fyrir tal né tónlist og áhorfendum er velkomið…

