


lau., 06. des.
|Leikfélag Akureyrar - Samkomuhúsið
JÓLAGLÖGG
Veislan þar sem allar reglur jólanna verða brotnar.
Tími og staðsetning
06. des. 2025, 20:00 – 22:30
Leikfélag Akureyrar - Samkomuhúsið, Hafnarstræti 57, 600 Akureyri, Iceland
Um viðburðinn
Jólin, jólin allstaðar. Rauð eða hvít eða blaut?
Umskiptingar bjóða í jólaglögg, ásamt góðum vinum sínum, en þar getur allt skeð. Því þegar átta manns koma saman til að halda jólapartý er næstum öruggt að einhverjar jólareglur verði brotnar! En hver ákvað allar þessar reglur? Og hvað gerist ef maður brýtur þær? Eru jólin þá ónýt?
Komið með í sprenghlægilegt ferðalag um skrýtnar jólahefðir, yfirþyrmandi jólalög, gjafastress, smákökusyndir og öll helvítís jólaboðorðin.
Leikarar: Margrét Sverrisdóttir, Kolbrún Lilja Guðnadóttir, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Sindri Swan, Fanney Valsdóttir, Diana Sus, Vigdís Halla Birgisdóttir, Hjalti Rúnar Jónsson.
Leikstjórn: Jenný Lára Arnórsdóttir
Höfundar: Umskiptingar
Tónlist: Umskiptingar
Ljós og hljóð: Arnþór Þórsteinsson