top of page
JÓLAGLÖGG
JÓLAGLÖGG

mið., 17. des.

|

Leikfélag Akureyrar - Samkomuhúsið

JÓLAGLÖGG

Jólagrínsýning ársins!

Registration is closed
See other events

Tími og staðsetning

17. des. 2025, 20:00 – 22:30

Leikfélag Akureyrar - Samkomuhúsið, Hafnarstræti 57, 600 Akureyri, Iceland

Um viðburðinn


Jólagrínsýning ársins! 

Ertu til í að springa úr hlátri, virkja jólaskapið og njóta lífsins?


Jólaglögg er óstjórnlega fyndin sketsasýning þar sem tæklaðar eru skrítnar jólahefðir, yfirþyrmandi jólalög, gjafastress og meira til! Innpakkað í eina handhæga kvöldstund og eins og allir góðir pakkar mun þessi sýning koma þér ánægjulega á óvart! 


Varúð: Sýningin gæti valdið hláturköstum. 


Fullkomlega frumsamin norðlensk framleiðsla úr smiðju atvinnuleikhópsins Umskiptinga.


Sýningin er ekki við hæfi barna. 

"Áramótaskaupið kom snemma í ár - drífið ykkur í leikhús og lengið lífið með hlátrasköllum!!!" - Oddur Bjarni

“Ég hef ekki lengi heyrt jafnmikin hlátur í salnum og þvílík orka og gleði í leikendum!” - Saga Geirdal Jónsdóttir
“Ég er enn með strengi í hnakkanum eftir ofreynslu hláturvöðva, vó hvað þetta var fyndið og hressandi!” - Þórgnýr Dýrfjörð
“Pör, vinahópar, mæður, Norðlendingar og þið sem eruð í jólastressi… Takið ykkur pásu, bókið ykkur miða og njótið þess að hlæja svolítið hressilega!” - Selma Sverris
“Skemmti mér konunglega! ⭐⭐⭐⭐⭐ ” - Mamma Sindra

Leikarar: Margrét Sverrisdóttir, Kolbrún Lilja Guðnadóttir, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Sindri Swan, Hjalti Rúnar Jónsson, Fanney Valsdóttir, Diana Sus, Vigdís Halla Birgisdóttir.

Leikstjórn: Jenný Lára Arnórsdóttir.

Höfundar: Margrét Sverrisdóttir, Kolbrún Lilja Guðnadóttir, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Sindri Swan, Hjalti Rúnar Jónsson, Fanney Valsdóttir, Diana Sus, Vigdís Halla Birgisdóttir, Jenný Lára Arnórsdóttir..

Tónlist: Diana Sus o.fl.

Share This Event

HAFIÐ SAMBAND

Davíðshagi 2, 401, 600 Akureyri, Iceland

Email: umskiptingar (hjá) gmail.com / Sími: 00354 849 4601

Kt:501019-0110

  • Instagram
  • Facebook
bottom of page