


fös., 29. ágú.
|Tjarnarbíó
LÍF
Er óbilandi trú á sjálfan sig allt sem þarf til að “meikaða”? Sissa Líf er tónlistarkona af lífi og sál. Hún hefur óbilandi trú á eigin ágæti en finnst hún ekki njóta sannmælis í listaheiminum.
Tími og staðsetning
29. ágú. 2025, 20:30 – 30. ágú. 2025, 22:00
Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík, Iceland
Um viðburðinn
Er óbilandi trú á sjálfan sig allt sem þarf til að “meikaða”?
Sissa Líf er tónlistarkona af lífi og sál. Hún hefur óbilandi trú á eigin ágæti en finnst hún ekki njóta sannmælis í listaheiminum. Eftir eins sumars frægð á unglingsárunum og vinsælan einsmellung dreymir hana um meira. Svo miklu meira. En lífið þvælist fyrir henni og áframhaldandi frægð lætur bíða eftir sér.
Sissa gefst samt ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Nú er hún mætt í Tjarnarbíó þar sem hún á að taka eitt lag, hittarann Hurry Boy eftir hljómsveitina sína Airship Fury, en ekki fer allt eftir áætlun.
Verkið var frumsýnt í Hlöðunni á Litla-Garði hjá Akureyri.
Þá fór Líf á leikferð um Norðausturland og þaðan á RVK Fringe árið 2022. Þar hlaut Margrét verðlaun fyrir bestu karaktersköpunina á hátíðinni. Um haustið var Líf gestasýning hjá Leikfélagi Akureyrar þar sem það var sýnt tvisvar sinnum fyrir fullu húsi.
Líf kemur áhorfendum ávallt í opna skjöldu og veltir upp pælingum um andlegt heilbrigði, brotalamir samfélagsins og fjallar um óhefðbundna, kvenkyns söguhetju (eða réttara væri að segja andhetju).
Úr gagnrýni Elsu Maríu Guðmundsdóttur á verkinu fyrir kaffid.is:
„Margrét býr til afar trúverðuga persónu, hún á létt með að galdra fram kaldhæðnislegt grín í bland við frekar sorgleg örlög Sissu.“
„Mæli hjartanlega með þessari sýningu, skemmtileg, áhugaverð og hér gefst tækifæri til að sjá fagmannlegan einleik á skemmtilegu sviði í tryggri leikstjórn Jennýjar Láru.“