


lau., 09. ágú.
|Hælið - Setur um sögu berklana
Litla tónleikaröð Hælisins - Eik og Guðjón
María Pálsdóttir - Listakonan á bak við Hælið býður til útitónleika í skoti Hælisins með yndislegu Eik og Guðjóni! Tónleikarnir eru í boði Hollvina Hælisins, enginn aðgangseyrir en gestir eru hvattir til að kaupa kræsingar á kaffihúsinu.
Tími og staðsetning
09. ágú. 2025, 13:30 – 15:00
Hælið - Setur um sögu berklana , 605 Kristnes, Iceland
Um viðburðinn
Velkomin á útitónleika í skoti Hælisins (ef veður leyfir - annars inni) með yndislegu Eik og Guðjóni! Tónleikarnir eru í boði Hollvina Hælisins, enginn aðgangseyrir en gestir eru hvattir til að kaupa kræsingar á kaffihúsinu.
Facebook Viðburður - Athugið kl 13:30!
Eik Haraldsdóttir er söngkona frá Akureyri. Hún byrjaði ung í tónlist og hefur verið að flytja tónlist síðan 2013. Hún tók rytmískt framhaldspróf árið 2021 í tónlistarskólanum á Akureyri en hún kynntist djasstónlist almennilega þegar hún hóf nám við Listaháskóla Íslands.
Guðjón Steinn Skúlason er fjölhæfur tónlistarmaður og hljóðfæraleikari úr Reykjavík. Hann er menntaður í djass-saxófónleik, bæði úr Menntaskóla í Tónlist og Manhattan School of Music, en auk þess hefur hann reglulega komið fram í hlutverki klarinettu-, þverflautu-, píanó- og bassaleikara.