top of page
Rætur - brot úr sögu alþýðumenningar frá landsnámi til okkar daga.
Rætur - brot úr sögu alþýðumenningar frá landsnámi til okkar daga.

lau., 30. ágú.

|

Menntaskólinn á Akureyri

Rætur - brot úr sögu alþýðumenningar frá landsnámi til okkar daga.

Jónína Björt leikstýrir: Rætur er sögusýning þar sem verður, í tali og tónum, farið yfir alþýðumenningu Íslendinga frá upphafi landnáms til okkar daga.

Tími og staðsetning

30. ágú. 2025, 15:00 – 16:30

Menntaskólinn á Akureyri, Eyrarlandsvegur 28, 600 Akureyri, Iceland

Um viðburðinn

Rætur er sögusýning þar sem verður, í tali og tónum, farið yfir alþýðumenningu Íslendinga frá upphafi landnáms til okkar daga.

Sagt verður frá þróun afþreyingar þjóðar sem byrjar á kveðskap í landnámsskálum og baðstofum liðinna alda, sagt frá vikivaka sem stignir voru á vökum í kirkjum landsins og hvaða áhrif hljóðfæri eins og harmonikan og fiðlan hafði á alþýðumenningu þjóðarinnar með tilkomu nýrrar tegundar tónlistar og dansa.


Sýningin er hluti af Akureyrarvöku og er samvinnuverkefni Kvæðamannafélagsins Gefjunar, Dansfélagsins Vefarans, Þjóðháttafélagsins Handraðans og Félags Harmonikuunnenda við Eyjafjörð.


Leikstjóri er Jónína Björt Gunnarsdóttir.

Sýningin er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra, Akureyrarbæ og Norðurorku.


Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Share This Event

HAFIÐ SAMBAND

Davíðshagi 2, 401, 600 Akureyri, Iceland

Email: umskiptingar (hjá) gmail.com / Sími: 00354 849 4601

Kt:501019-0110

  • Instagram
  • Facebook
bottom of page