top of page
Rokkland 30 ára
Rokkland 30 ára

lau., 01. nóv.

|

Menningarhúsið Hof

Rokkland 30 ára

Jónína Björt syngur og kórstýrir á afmælishátið Rokklands, en á tónleikunum ætla SinfoniaNord ásamt Todmobile bandinu og nokkrum af glæsilegustu söngvurum landsins að flytja helstu vörður popp og rokksögunnar

Registration is closed
See other events

Tími og staðsetning

01. nóv. 2025, 20:00 – 22:30

Menningarhúsið Hof, Strandgata 12, 600 Akureyri, Iceland

Um viðburðinn

Rokkland á Rás 2 á 30 ára afmæli í haust, og af því tilefni verður haldin afmælishátíð í Hofi á Akureyri og Rokkland sett á svið í samstarfi við SinfoniuNord.


Á tónleikunum ætla SinfoniaNord ásamt Todmobile bandinu og nokkrum af glæsilegustu söngvurum landsins að flytja helstu vörður popp og rokksögunnar – lög sem skipta máli og eiga það sameiginlegt að njóta sín vel í flutningi stórrar hljómsveitar - í bland við aðrar perlur.Ólafur Páll, forseti Rokklands, valdi lögin í samstarfi við Þorvald Bjarna og meðal hljómsveita og listamanna sem eiga lög á efnisskránni eru Beatles, Björk, David Bowie, Neil Young, Led Zeppelin, E.L.O, U2, Iron Maiden, Sigur Rós, Queen ofl.


Allt á sér sögu, ekki síst músík og mun Ólafur Páll vera með á sviðinu og tengja þetta allt saman með stuttum kynningum og sögunum á bakvið lögin.


Fyrsti Rokklands-þátturinn fór í loftið í 7. október 1995 sem gerir hann að langlífasta þættinum á dagskrá Rásar 2 og að einum elsta þætti í sögu útvarps á Íslandi. Það er helst að Kvöldgestir Jónasar Jónassonar eða djassþáttur Jóns Múla geti skákað Rokklandi þegar kemur að langlífi.


Sinfónískt rokk, epískt popp, eilíft folk og leyndarmálin á bakvið tjöldin = kvöld sem þú vilt líklegast ekki missa af?

Share This Event

HAFIÐ SAMBAND

Davíðshagi 2, 401, 600 Akureyri, Iceland

Email: umskiptingar (hjá) gmail.com / Sími: 00354 849 4601

Kt:501019-0110

  • Instagram
  • Facebook
bottom of page