


sun., 26. okt.
|Stóri Salurinn, Garðaseli
Töfrabækurnar: Fóa og Fóa Feykirófa
Fóa og Fóa Feykirófa bregða landi landi undir fór og fara til suður til Akraness! Enginn aðgangseyrir.
Tími og staðsetning
26. okt. 2025, 12:00 – 12:30
Stóri Salurinn, Garðaseli, Asparskógar 25, 300 Akranes, Iceland
Um viðburðinn
Fóa og Fóa Feykirófa hafa ferðast víðsvegar um, en nú fara þau til Akraness!
Þessi töfrabók fjallar um það þegar Fóa Feykirófa rekur Fóu úr hlýja, fallega hellinum sínum og sest þar sjálf að. Fóa veit ekki hvað skal til bragðs taka en vinir hennar, lambið, kindin, sauðurinn og hrúturinn bjóða öll fram hjálp sína að ná honum til baka. Það gengur þó ekki áfallalaust fyrir sig.
Sýnt verður í Stóra Salnum Garðaseli kl 12:00 og 13:30.
Enginn aðgangseyrir.
Töfrabækurnar eru brúðuleikhússería fyrir yngstu börnin þar sem unnið er með þjóðsögur. Þegar bókin opnast breytist hún í leikmynd fyrir söguna og þær persónur sem koma fram verða tvívíðar brúður sem stjórnað verður ofan frá.
Tveir leikarar stjórna brúðum og sjá um allan leik og lifandi tónlistarflutning.
Þess má geta að sýningarnar eru ávallt afslappaðar þar sem kveikt er í salnum, ekki er notast við hljóðkerfi fyrir tal né tónlist og áhorfendum er velkomið að fara afsíðis af þau þurfa að hvíla sig.
Þetta er því einstaklega aðgengilegt sem fyrsta leikhúsupplifun barna.