
Leikhópurinn List

Margrét Sverrisdóttir
Leikkona / Leikskáld
Margrét Sverrisdóttir útskrifaðist úr BA námi í leiklist frá Arts Ed London 2003. Frá útskrift hefur hún skrifað, leikið og leikstýrt bæði í sjónvarpi og leikhúsi.
Arnþór Þorsteinsson
Leikari / Tæknimeistari

Sindri Swan
Leikari
Sindri Swan útskrifaðist sem leikari og leikstjóri frá KADA í London árið 2014.

Fanney Valsdóttir
Leikkona / Tónskáld
Fanney Valsdóttir er með BA gráðu í Miðlun og almannatengslum og MCM gráðu í menningarstjórnun.
Hún hefur verið viðloða leikhús í yfir 30 ár og leikið í yfir 20 sýningum, flestum hjá Leikfélagi Hörgdæla þar sem hún hefur starfað töluvert í stjórn félagsins.
Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir
Leikkona / Dansari / Söngleikjaleikari

Kolbrún Lilja Guðnadóttir
Leikkona / Skemmtanastjóri
Kolbrún Lilja Guðnadóttir hefur verið viðloða leikhúsið frá unga aldri og mátað sig í flest störf innan þess.

Sesselía Ólafsdóttir
Leikkona / Rithöfundur / Tónskáld
Sesselía Ólafs lauk námi í leiklist og leikstjórn í London árið 2012. Síðan þá hefur hún leikið og leikstýrt hérlendis og erlendis, á sviði sem og í kvikmyndum.

Vilhjálmur B. Bragason
Leikari / Rithöfundur / Tónskáld
Vilhjálmur B. Bragason útskrifaðist með MA gráðu frá Royal Academy of Dramatic Arts í London 2015.
Vilhjálmur hlaut Grímuna sem leikari ársins í aukahlutverki 2022 fyrir hlutverk Ketils Skræks í uppfærslu Leikfélags Akureyrar á Skugga Sveini.

Jenný Jára
Leikstjóri
Jenný Lára Arnórsdóttir útskrifaðist sem leikari og leikstjóri frá The Kogan Academy of Dramatic Arts í London árið 2012.
Hún hefur leikstýrt þónokkrum verkum, bæði hjá sjálfstæðum leikhópum sem og áhugaleikhópum.

María Pálsdóttir
Leikkona / Leikskáld

Jónína Björt Gunnarsdóttir
Leikkona / Söngvari
Jónína Björt Gunnarsdóttir útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands vorið 2014 með B.Mus gráðu.
Jónína hóf nám í New York haustið 2014 við New York Film Academy en þar lærði hún við söngleikjadeild í tvö ár.