

Um
Umskiptinga
Atvinnuleikhópur á landsbyggðinni
Atvinnuleikhópurinn Umskiptingar var stofnaður árið 2017 með því sjónarmiði að listamenn á Norðurlandi geti sinnt sinni list á heimaslóðum og þurfi ekki að sækja vinnu annað. Þetta markaði tímamót því langur tími var síðan síðast var sjálfstæður atvinnuleikhópur starfandi á Akureyri.
Fyrsta verk þeirra var frumsýnt stofnunarárið. Það var leikritið „Framhjá rauða húsinu og niður stigann“, eftir Birnu, Sesselíu og Vilhjálm. Sýningin vakti mikla eftirtekt og fékk góða dóma og var sýnd bæði á Akureyri og í Reykjavík. Árið eftir var leikhópurinn tilnefndur til Grímunnar sem sproti ársins.
Árið 2019 settu þau upp fjölskylduleikritið „Galdragáttin og þjóðsagan sem gleymdist“ í samstarfi við Leikfélag Akureyrar og í leikstjórn Agnesar Wild. Leikritið skrifuðu allir meðlimir Umskiptinga og tónlistina sömdu Vandræðaskáld. Sýningin fékk frábærar viðtökur, fjórar stjörnur í Morgunblaðinu og tilnefningu til Grímunnar sem barnasýning ársins 2020.
Árið 2021 sýndu Umskiptingar svo tvíleikinn “Í myrkri eru allir kettir Gráir” í Hlöðunni, Akureyri. Þar eru á ferð tveir einleikir, Heimþrá og Líf, eftir þær Sesselíu og Margréti sem segja sögur tveggja gjörólíkra kvenna. Sýningin fékk mjög góða dóma og var sýnd á Dalvík, Húsavík og á Kópaskeri vorið 2022.
Hópurinn
I'm a paragraph. Click here to edit and add your own text. Is easy! Just click on "Edit Text" or double-click on me and you can add your own content and change fonts. Feel free to drag and drop anywhere on your page. I'm a great place for you to tell your story and let your customers know a little more about you.
